Það er algengur misskilningur að óréttur í bílslysum útiloki rétt til bóta. Hið rétta er að ökumenn og farþegar eru vel tryggðir ef þeir slasast í umferðinni, hvort sem þeir eru í órétti eða ekki. Þótt þú eigir sök á slysi í umferðinni núllar það ekki út rétt til bóta, misskilningur sem hefur reynst mörgum dýrkeyptur.

Almennt er viðurkennt að meiri áhætta fylgir störfum á sjó en öðrum störfum. Starfsfólki til sjós er því tryggður mjög ríkur réttur til bóta í ljósi hættulegra og krefjandi vinnuaðstæðna. Verði líkamstjón vegna slyss tengt sjómennsku skiptir ekki máli hvort það sé að rekja til vanrækslu eða mistaka.

Öll slys í frítíma, hér á landi eða erlendis, en þau sem og önnur slys þarf að tilkynna til réttra aðila, innan ákveðinna tímafresta og sanna, ella er hætta á að bótréttur falli niður. Þá skipta tryggingarskilmálar verulegu máli sem og kjarasamningar eftir atvikum, eitthvað sem þarf að skoða hverju sinni.

Skilgreining vinuslysa getur verið mjög rúm, varstu til að mynda á leið til eða frá vinnu, að skreppa til að kaupa mat fyrir starfsmenn eða sinna persónulegum erindum? Skiptir máli hvort þú varst á eigin bíl, hjóli eða strætó? Vinnuslys leggja ríka ábyrgð á vinnuveitandann, þú þarf að treysta því að þinn yfirmaður á starfsstöð bregist rétt við, bíði ekki of lengi eða fari að ákvæðum laganna, ella hætta á að bótaréttur falli niður.

Þolendur líkamsárása og kynferðisbrota eiga rétt á því að fá skaðabætur vegna líkamstjóns sem þeir verða fyrir. Slíkar bætur taka til bæði tímabundinna og varanlegra afleiðinga tjónsins.

Allir heilbrigðisstarfsmenn eru tryggðir í gegnum íslenska ríkið eða vátryggingafélög. Lögmenn Bótaréttar sérhæfa sig í að aðstoða einstaklinga sem verða fyrir líkams- og heilsutjóni vegna afleiðinga meðferða af hálfu lækna, hjúkrunarfræðinga eða annarra heilbrigðisstarfsmanna, hvort sem meðferðin fór fram á sjúkrahúsi eða einkastofu.

Ertu engu bættari?

Okkar lögmenn geta skoðað málið fyrir þig strax í dag, það kostar ekkert

Scroll to Top